Íris Björg Guðbjartsdóttir dalakona er sauðfjárbóndi á bænum Klúku á Ströndum. Um síðastliðna helgi, 19-21. ágúst fór fram Íslandsmeistaramót í hrútadómum á Sauðfjársetrinu á Ströndum. Af því tilefni gerði Íris sér til gamans texta um hrútinn sinn, hann Móra. Hér syngur hún textann og spilar undir lagið Frank Mills, úr söngleiknum Hárið.