Senda Skessuhorni fréttaskot
Spurning vikunnar
Hver er þinn uppáhalds mánuður
Áskrift að Skessuhorni
Færð á vegum
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland

Útgefandi:

 

Skessuhorn ehf - Fréttaveita Vesturlands

Kt. 560103-3870 - Garðabraut 2A, 300 Akranesi.

 

Lögð er áhersla á að Skessuhorn sé hlutlaust og óháð útgáfufélag, laust við bein hagsmunatengsl félaga, fyrirtækja, fjármagnseigenda og stofnana í samfélaginu. Við rekum því frjálsan og óháðan fjölmiðil - fyrir fólkið á Vesturlandi.

 

Hvað erum við og hvað gerum við? 

Skessuhorn var sett á stofn í ársbyrjun 1998 og hóf rekstur sinn með útgáfu Vesturlandsblaðsins Skessuhorns sem komið hefur út vikulega allar götur síðan. Núverandi útgáfufélag tók við rekstrinum 2003. Lögð er áhersla á að skrifa fréttir um og fyrir íbúa á Vesturlandi. Kjörorð okkar og ritstjórnarstefna er að skrifa það sem íbúar "vilja" og "þurfa" að vita.

 

Blaðið Skessuhorn hefur mjög góða dreifingu á öllu Vesturlandi og er eitt útbreiddasta héraðsfréttablað landsins. Það er prentað í 3.700 eintökum. Með því er fylgst og í það vitnað hvarvetna í stærri fjölmiðlum á landsvísu og meðal almennings innan sem utan Vesturlands. Auk útgáfu héraðsfréttablaðs er umsjón með síkvikum og fræðandi miðli á netinu, www.skessuhorn.is önnur aðalstarfsemi fyrirtækisins.

 

Þá gefur Skessuhorn út Ferðablaðið Vesturland - Travel West Iceland á hverju vori og tekur einnig að sér útgáfu fréttabréfa og ýmissa rita í verktöku.

 

Hjá Skessuhorni ehf. starfa í dag 6 í föstu starfi auk "freelance"  blaðamanna, umbrotsmanna og fjölda blaðburðarbarna, fréttaritara og ljósmyndara um allt Vesturland.

 

Vakin er athygli á því að vitna má í efni á vef Skessuhorns, sé heimilda rækilega getið. Útgáfufélagið áskilur sér rétt til að innheimta gjald samkvæmt eigin gjaldskrá af fjölmiðlum sem virða ekki höfundarrétt eða taka ljósmyndir ófrjálsri hendi.

 

  

Helstu verkefni:

 

   Útgáfa á Skessuhorni, vikublaði allra Vestlendinga

   Rekstur frétta- og upplýsingavefjarins www.skessuhorn.is

  

 

 

Aðsent efni, fyrirspurnir og pantanir sendist á:

 

skessuhorn@skessuhorn.is

 

Sími: 433-5500, fax: 433-5501

 

Aðsetur:

Garðabraut 2A, 300 Akranesi

 

Skrifstofutími:

Virka daga klukkan 09 - 16:30

 

 

Starfsfólk:

Vinsamlegast farið inn á nýja heimasíðu til að leita réttra upplýsinga um starfsfólk: www.skessuhorn.is

Leit á vefnum
Fréttasafn
Næsta ár Fyrra ár
Mest lesið í vikunni
Aðsendar greinar
Hulda Hrönn Sigurðardóttir

Þjónusta við einstaklinga með ...

Ásmundur Einar Daðason

Ljósleiðari á hvert heimili

Bjarni Jónsson

Landsnet verði í samfélagseigu

Ólafur Óskarsson

Betri byggð, öruggari umferð

Lilja Rafney Magnúsdóttir

Spilavíti eru „Víti til varnað...

Frá mbl.is

Ekki tókst að sækja efni

Frá visir.is

Ekki tókst að sækja efni

Skessuhorn á Facebook Skessuhorn á LinkedIn Skessuhorn á Twitter Skessuhorn á Instagram Skessuhorn ehf. kt. 560103-3870 - Kirkjubraut 56, 300 Akranes - Sími 433 5500 - Ritstjórn skessuhorn@skessuhorn.is